Búnaðarþing hefur tilnefnt í stjórn RML

Á Búnaðarþingi sem lauk seint í gærkvöldi var meðal annars tilnefnt í nýja stjórn RML. Formaður stjórnar er Eiríkur Blöndal en formaðurinn skal samkvæmt samþykktun Bændasamtaka Íslands vera sá aðili sem gegnir framkvæmdastjórastöðu hverju sinni.

Eftirfarandi voru tilnefndir:

  • Guðný H. Jakobsdóttir, Syðri-Knarrartungu, Snæfellsnesi
  • Guðrún Stefánsdóttir, Hlíðarendakoti, Fljótshlíð
  • Guðmundur Bjarnason, Svalbarði, Svalbarðsströnd
  • Sveinn A. Sæland, Espiflöt, Biskupstungum

Til vara:

  • Björn Halldórsson, Akri, Vopnafirði
  • Guðrún Lárusdóttir, Keldudal, Hegranesi
  • Jóhannes Sveinbjörnsson, Heiðarbæ I, Þingvallasveit
  • Guðrún Sigurjónsdóttir, Glitstöðum, Norðurárdal.

Eigandinn, Bændasamtök Íslands mun síðan skipa í stjórn RML.

rml/okg