Breytingar á starfsmannahaldi

Hrafnhildur Baldursdóttir
Hrafnhildur Baldursdóttir

Hrafnhildur Baldursdóttir er komin til baka úr fæðingarorlofi og mun starfa við fóðuráætlanir og önnur verkefni tengd fóðrun. Hrafnhildur hefur aðsetur á skrifstofunni á Austurvegi 1 á Selfossi en ein af stærri skrifstofum RML er staðsett þar. Þar er nú þegar staðsettur nokkur hópur starfsmanna RML sem er boðinn og búinn til ráðgjafar.

Þeir eru:
Guðmundur Jóhannesson, nautgriparækt
Halla Eygló Sveinsdóttir, hrossarækt
Jóna Þórunn Ragnarsdóttir, fóðrun
Kristján Bjarndal Jónsson, jarðrækt
Ólafur Þór Þórarinsson, aðstoð við dkBúbót
Runólfur Sigursveinsson, búrekstur, nýbúgreinar og hlunnindi
Sveinn Sigurmundsson, nautgriparækt