Breyting á verðskrá RML

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið staðfesti þann 2. febrúar s.l. breytingar á verðskrá RML. Tímagjald RML verður kr. 7.000,- auk vsk pr. klst fyrir vinnu við sérfræðistörf sem falla undir búnaðarlög sbr. 15. grein rammasamnings
um almenn starfsskilyrði landbúnaðarins dags 19. febrúar 2016 og 3.mgr. 3.gr. búnaðarlaga nr. 70/1998 með síðari breytingum.
Verð fyrir selda þjónustu sem fellur utan búnaðarlaga verður kr. 13.000, - auk vsk pr. klst.
Þá hækkar verð vegna komugjalds úr kr. 5.000,- auk vsk í kr. 6.000,- auk vsk.
Þessar breytingar taka gildi frá og með 1. mars 2017. Verðskrána má nálgast hér.

 

hh