Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Vegna vondrar veðurspár verður að breyta fyrirkomulagi dóma á Hólum í komandi viku. Ekki verður dæmt dagana 3. - 5. júní (mánudag - miðvikudag). Almannavarnir hafa sett á gula veðurviðvörun og hafa sýningarstjóri og formaður dómnefndar, í samráði við knapa, ákveðið að fella niður þessa fyrstu þrjá daga í dómavikunni. Dæmt verður fimmtudaginn 6. júní og yfirlitssýning föstudaginn 7. júní. Vegna tilfærslu á hrossum á milli vikna á Hólum, verður ný hollaröðun birt eins fljótt og auðið er, fyrir næstu tvær dómavikur þar. Ef eitthvað er óskýrt hafið samband við RML.
Sýningarstjóri á Hólum er Guðrún Hildur Gunnarsdóttir s: 8482834 netfang gudrunhildur@rml.is
Þökkum skilninginn - Kveðja RML
ghg/agg