Bætt við plássum á kynbótasýningu á Gaddstaðaflötum

Vegna mikillar eftirspurnar eftir tímum á Gaddstaðaflötum við Hellu hefur verið ákveðið að tvö dómaragengi verði að störfum þar vikuna 11. til 15. júní.  Opnað verður á skráningar í þessi pláss kl. 8:00 mánudaginn 30. apríl. Opið verður fyrir skráningar þar til þessi pláss fyllast.

Rétt er að benda á að enn er nóg af lausum plássum á eftirtöldum sýningum:
Brávöllum á Selfossi vikuna 28. maí til 1. júní
Spretti í Kópavogi vikuna 4. til 8. júní
Víðidal í Reykjavík vikuna 11. til 15. júní
Borgarnesi vikuna 11. til 15. júní

Skráningar á sýningar norðan- og austanlands fara rólega af stað enda nægur tími enn til stefnu. Allar tilkynningar varðandi kynbótasýningar eru birtar hér á heimasíðu RML.

thk/agg