Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Loftslagsvænn landbúnaður er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum. Markmið verkefnisins er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og auka kolefnisbindingu.
Samningur var undirritaður fyrr í mánuðinum við atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og umhverfis- og auðlindráðuneytið um að stækka verkefnið og bjóða fimmtán búum í nautgriparækt að hefja þátttöku í haust.
Þátttakendur gera skriflega aðgerðaáætlun fyrir búreksturinn, hrinda loftslagsmarkmiðum í framkvæmd og eru virkir þátttakendur í vegferð landbúnaðarins að loftslagsvænum lausunum. Þátttakendur fá heildstæða ráðgjöf, fræðslu og aðhald frá RML, Landgræðslunni og Skógræktinni. Auk þessa þátttökustyrk, styrk til efnagreininga og þegar líður á verkefnið aðgerða- og árangurstengdar greiðslur.
Í dag eru 27 sauðfjárbú í verkefninu, öll í gæðastýrðri sauðfjárrækt, staðsett víðsvegar á landinu. Öll hafa sett sér aðgerðaáætlun og eru byrjuð að vinna að loftslagsvænum markmiðum. Bændur í nautgriparækt er boðnir velkomnir í hópinn.
Áhugasamir um þátttöku geta sótt um á vefsíðu RML, www.rml.is, eða haft samband við Berglindi Ósk Alfreðsdóttur, verkefnastjóra, í síma 516-5000 eða á berglind@rml.is.
Sjá nánar:
Sækja um þátttöku
/okg