Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Kallað hefur verið eftir auknu fræðsluefni um nautakjötsframleiðslu og lagði RML, í samstarfi við Framleiðnisjóð, af stað í gerð fræðsluefnis um nautakjötsframleiðslu. Fóður- og nautgriparæktarhópur RML hóf vinnslu bæklings en þegar vinnan hófst varð mönnum ljóst að fræðsluefnið hefði orðið mjög yfirborðskennt ef allt ferli nautakjötsframleiðslu væri undir í einum stuttum bæklingi. Það varð því úr að mismunandi skeiðum framleiðslunnar var skipt upp og stefnan er að gera röð bæklinga með mismunandi tímabil framleiðslunnar í huga. Nú er fyrsta afurðin í þessari röð komin út en fjallar sá bæklingur um ungkálfa á mjólkurskeiði. Þessi bæklingur á jafnt við nautakjöts- og mjólkurframleiðslu. Lifandi og heilbrigðir kálfar eru lykilatriði í framleiðslu kjöts og mjólkur eða eins og sagt er: „Lengi býr að fyrstu gerð!“. Hér er um að ræða einstaklega viðkvæmt tímabil og mistök á þessu tímabili geta litað allt líf kálfsins í lélegra heilsufari og minni vexti. Farið er í gegnum fyrstu tíma kálfsins, mikilvægi broddmjólkur, mjólkur-, kjarnfóður- og gróffóðurgjöf og aðbúnað en ef þessi atriði eru í lagi skilar það bóndanum betri gripum og auknum hagnaði. Bæklingurinn er aðgengilegur hér á heimasíðunni.
Sjá nánar:
Fyrstu skrefin - Um fóðrun og aðbúnað ungkálfa á mjólkurskeiði
Fóðurráðgjöf
Nautakjötsframleiðsla
/okg