Aukaskráningargluggi 15. ágúst / Síðsumarssýning á Rangárbökkum

Sökum fjölda áskorana hefur verið ákveðið að opna að nýju fyrir skráningar á síðustu kynbótasýningu ársins sem fram fer á Rangárbökkum í komandi viku.

Opnað verður fyrir nýjar skráningar hrossa kl. 15:00 í dag (15. ágúst) og verður möguleikinn opinn til miðnættis, eða þar til 30 nýjar skráningar hafa borist.

Upplegg næstu viku breytist því á þann veg að dæmt verður mánudag til miðvikudags (19.-21. ágúst) en síðasta IS-yfirlitssýning ársins fer fram fimmtudaginn 22. ágúst.

Athugið að öll hross sem kunna að verða nýskráð til sýningar í dag munu verða dæmd miðvikudaginn 21. ágúst enda ekki fyrirhugað að hrófla á nokkurn hátt við áður birtri hollaröð þeirra hrossa sem skráð voru til leiks innan hefðbundinna auglýstra tímamarka skráninga.

/okg