Athugið lítilsháttar breytingar á tímasetningu - Kynbótavöllur LM2014

  Til að hliðra til fyrir setningarathöfn LM2014 fimmtudagskvöldið, 3. júlí, reyndist nauðsynlegt að hnika dagskrárliðum á kynbótavellinum aðeins til. Þessi breyting hefur engin áhrif á hvaða hross eiga að koma fram þetta kvöld en best er fyrir alla að standa klárir á tímasetningum með góðum fyrirvara. Það litla sem breytist er eftirfarandi (sjá einnig hér á uppfærðir dagskrá.
 
               
Seinnipartur fimmtudagsins 3. júlí, Kynbótavöllur.
Breyttar tímasetn - v. setningarathafnar.
16:00-17:50 Yfirlit hryssur 6v - framh.
17:50-19:50 Yfirlit hryssur 5v
Hlé 19:50-20:40  
20:40-21:10 Yfirlit hryssur 5v - framh.
21:10-21:50 Yfirlit hryssur 4v
 
hh/ph