Alltaf hægt að leita ráða

Nú er hægt að panta ráðgjöf frá ráðunautum RML í gegnum heimasíðuna. Neðst til hægri á forsíðunni er kominn hnappurinn „Panta ráðgjöf“ og sé smellt á hann kemur upp einfalt eyðublað til að fylla út. Þegar eyðublaðið hefur verið fyllt út og sent fer það til viðkomandi ráðunautar sem hefur í framhaldinu samband við þann sem pantar ráðgjöfina. Þetta getur til dæmis nýst þeim vel sem vilja koma á framfæri fyrirspurnum utan hefðbundins skrifstofutíma. 

Þeir sem vilja gera rml.is að upphafssíðu geta nálgast leiðbeiningar um hvernig það er gert í gegnum tengil hér efst á síðunni: "Gera rml.is að upphafssíðu". 

Sjá nánar: 

Panta ráðgjöf

Gera rml.is að upphafssíðu

/okg