350 milljónir til bænda á kalsvæðum

Á ríkisstjórnarfundi í morgun var samþykkt tillaga Sigurðar Inga Jóhannssonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra um 350 milljóna króna stuðning við bændur á þeim svæðum sem urðu illa úti vegna kals og snjóþyngsla.

Meginhluti fjárins mun fara til endurræktunar á túnum og fer úthlutunin fram í gegnum Jarðræktarsjóð. Þá mun nokkur hluti upphæðarinnar renna til bænda sem hafa borið umtalverðan kostnað vegna snjóþyngslanna.

Í samvinnu ráðuneytisins og Bændasamtaka Íslands er unnið að útfærslu úthlutunarreglna sem verða kynntar nánar síðar.

/okg