Karfan er tóm.
- Ráðgjöf
- Kynbótastarf
- Forrit og skýrsluhald
- Fjárvís.is
- Huppa.is
- Worldfengur.com
- Jörð.is
- dkBúbót
- Heiðrún.is
- Aðstoð
- Innheimta, verðskrá og reglur
- Um okkur
Karfan er tóm.
Áformað er að halda námskeið í dkBúbót bókhaldskerfinu ef næg þátttaka fæst. Einnig verða haldnir stuttir kvöldfundir þar sem helstu breytingar verða ræddar og farið yfir ársuppgjör og framtalsgerð.
Á námskeiðunum er gert ráð fyrir að hver og einn komi með sína tölvu með dkBúbót uppsettri og sitt bókhald og vinni í því. Þar verða einnig tekin fyrir þau atriði sem eru til umfjöllunar á kvöldfundinum. Ef viðkomandi er ekki áskrifandi að dkBúbót þarf að hafa samband við Jóhönnu Lind Elíasdóttur fyrirfram, í gegnum netfangið jle@rml.is.
Nú þegar hafa verið haldin námskeið í Skagafirði og á Kirkjubæjarklaustri og voru þau vel sótt.
Námskeið í dkBúbót verða á eftirtöldum stöðum:
Selfossi - Skrifstofu BSSL, Austurvegi:
- Þriðjudaginn 17. febrúar kl. 14.00-18.00 - grunnnámskeið (fullbókað)
- Miðvikudaginn 18. febrúar kl. 9.00-13.00 - framhaldsnámskeið (fullbókað)
Húsavík - skrifstofu stéttarfélaganna, Garðarsbraut 26:
- Fimmtudaginn 19. febrúar kl. 13.00-17.00 - grunnnámskeið
- Föstudaginn 20. febrúar kl. 9.00-13.00 - framhaldsnámskeið
Borgarnesi - Hótel Hamri:
- Mánudaginn 23. febrúar kl. 13.00-17.00 - grunnnámskeið
- Þriðjudaginn 24. febrúar kl. 9.00-13.00 - framhaldsnámskeið
Á grunnámskeiðinu verður farið í skráningu dagbókar, virðisaukaskattsuppgjör, skuldunauta, lánadrottna, vörur, sölureikninga og ársuppgjör.
Á framhaldsnámskeiðinu verður farið í launakerfið, eignakerfið og framtal.
Námskeiðsgjaldið er 24.000 kr. fyrir stakt námskeið (6 kennslustundir) og 40.000 ef viðkomandi skráir sig á bæði grunnnámskeið og framhaldsnámskeið. Bændur geta sótt um styrk úr starfsmenntasjóði BÍ vegna námskeiðanna.
Til að skrá sig á námskeið skal senda tölvupóst í síðasta lagi þremur dögum fyrir dagsetningu námskeiðs á jle@rml.is þar sem fram kemur:
Nafn og heimilisfang
Hvaða námskeið viðkomandi vill fara á (hvar, hvenær)
Símanúmer
Kt. greiðanda
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Lind, rekstrarráðunautur RML, netfang jle@rml.is eða s. 516-5028
Kynningarfundir vegna framtals og ársuppgjörs í dkBúbót:
Kynningarfundir um framtalsgerð í dkBúbót og skattabreytingar verða á eftirtöldum stöðum, svo framarlega sem næg þátttaka verður á námskeiðunum og verður það tilkynnt hér á vefnum þegar nær dregur:
Selfossi, Tryggvaskála, þriðjudagskvöldið 17. febrúar kl. 20.00
Húsavík, skrifstofu stéttarfélaganna, Garðarsbraut 26, fimmtudagskvöldið 19. febrúar kl. 20.00
Borgarnesi, Hótel Hamri, mánudagskvöldið 23. febrúar kl. 20.00
Farið verður yfir framtalsgerð í dkBúbót og algengar spurningar sem upp hafa komið ásamt helstu breytingum á skattaumhverfinu og dkBúbót forritinu.
Nánari upplýsingar veitir Jóhanna Lind, rekstrarráðunautur RML, í netfanginu jle@rml.is eða síma 516-5028.
jle/okg