Bestu nautin í árgangi 2005 verðlaunuð

F.v. Guðmundur Jóhannesson og Benjamín Baldursson
F.v. Guðmundur Jóhannesson og Benjamín Baldursson

Guðmundur Jóhannesson, ábyrgðarmaður í nautgriparækt hjá RML, afhenti verðlaunin og fór um leið nokkrum orðum um þessi afbragðsnaut. Bæði eru þau synir Stígs 97010 frá Oddgeirshólum og móðurfaðir beggja er Kaðall 94017 frá Miklagarði. Þau gefa miklar mjólkurkýr með ákaflega sterka og góða júgur- og spenagerð auk þess sem mjaltir eru með ágætum. Notkun þeirra hefur verið mikil í vetur enda um afbragðsgripi að ræða.

Benjamín Baldursson bóndi á Ytri-Tjörnum og ræktandi Vindils tók við verðlaunum fyrir Vindil á fundinum en Ragnar Magnússon bóndi í Birtingaholti 1 og ræktandi Birtings átti ekki heimangengt. Honum voru því afhent verðlaunin í dag og við það tækifæri var meðfylgjandi mynd tekin.

Eva María Magnúsdóttir, Ragnar Magnússon og Hvítkolla 1458 Skurðsdóttir 02012 og sammæðra Birtingi 05043.

 

gj